10.12.2007 | 14:39
Það er merkilegt
Já það er merkilegt hvernig sumt fólk er valið til að vera nákvæmlega þar sem það er.
Fyrir nokkrum árum þá skipti ég um viðskiptabanka eftir ótrúlega framkomu KB banka
Ég flutti mig sem sagt yfir í SPV í Borgartúni 18 .sem í dag heitir Byr.
Og þvílíkur munur !!!!!!
það að koma þar inn er bara eins og að koma inn til vina sinna umhverfið og framkoman er slík.
Alltaf fer maður út ánægður með að það hefur fundist besta lausnin
Vitið þið ég er með frábæran þjónustufulltrúa síðan ég byrjaði með viðskipti þarna
þá get ég alveg sparað mér þá sálfræðiþjónustu
sem ég annars þyrfti því held að hún viti það ekki en hún er betri en nokkur sálfræðingur allavega fyrir mig
Sem var haldin þvílíkri bankafópíu eftir viðskipti mín við KB.banka. Hjá Byr kem ég og sest niður og spjalla um daginn og veginn og síðan eru málin leyst í sameiningu og held bara að allir séu sáttir
Ég segi bara Byr er til eftirbreytni fyrir aðrar bankastofnanir hvað varðar framkomu gagnvart viðskiptavinum sínum og þar eru allir jafnir.
BYR það er málið ekki spurning.
P.s var ekki að fá lán en ég og Byr erum að kaupa okkur íbúð saman hahaha
og þá þarf maður stundum að laga til.
Maður á að hrósa því sem vel er gert !!!!!!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.12.2007 | 22:56
Hvað er að gerast.Foreldrahús að loka ?? viljum við það ?
Tökum höndum saman vinnum í því að halda Foreldrahúsi opnu.
það skiptir margar fjölskyldur máli og okkur öll.
Á þessum tíma sem nú er og allt viðist snúast um Mammon ættum við að staldra við og hugsa það gæti verið að mín fjölskylda þurfi á þessu úrræði að halda
Fíknisjúkdómar skipta ekki bara þá máli sem eru fíklar heldur foreldra þeirra,systkin afa,ömmu og marga fleiri.
Vandræði barna okkar gera nefnilega ekki boð á undan sér.
næst gæti það verið mitt barn,eða þitt.
Það mesta og dýrmætasta sem nokkur maður á er barnið hans eða börn.
Foreldrahús hefur hjálpað mörgum og við megum ekki við því að missa eitt af úrræðum í þessum málaflokk því nógir eru biðlistarnir fyrir
Sigurður Hólmar Karlsson
ICADC vímuefnaráðgjafi
![]() |
Foreldrahúsi lokað um áramót |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.12.2007 | 08:30
VANDAMÁLATRÉÐ: Ætla að fá mér svona tré ;)
Góðan dag
Rakst á þessa sögu og þó mín skoðun sé sú að það séu ekki til vandamál aðeins verkefni,
ætla ég að láta hana fljóta hér með
VANDAMÁLATRÉÐ
Smiðurinn sem ég réð til að hjálpa mér að gera upp gamalt sveitabýli, hafði nýlokið erfiðum fyrsta degi í vinnunni. Hann var klukkutíma of seinn í vinnuna vegna þess að það sprakk dekk á bílnum, rafmagnssögin hans gafst upp, og nú neitaði forni pallbíllinn hans að fara í gang. Meðan ég keyrði hann heim, sat hann við hlið mér í þögn. Þegar við vorum komnir, bauð hann mér inn til að hitta fjölskylduna. Þar sem við gengum að útidyrunum, stoppaði hann stuttlega við lítið tré og snerti trjágreinarnar með báðum höndum.Eftir að hann opnaði hurðina, varð á honum undursamleg breyting. Sólbrúnt andlit hans rifnaði í brosi og hann faðmaði börnin sín tvö og kyssti konuna sína. Seinna gekk hann með mér að bílnum mínum. Við gengum framhjá trénu og forvitnin náði tökum á mér. Ég spurði hann um það sem ég hafði séð hann gera fyrr um kvöldið. "Æ, þetta er vandamálatréð mitt," svaraði hann. "Ég veit að ég kemst ekki hjá vandamálum í vinnunni, en það er eitt sem víst er, að þau eiga ekki heima á heimili mínu hjá konu minni og börnum. Þannig að ég hengi þau á tréð þegar ég kem heim á kvöldin. Síðan tek ég þau aftur af trénu á morgnana." "Það skrýtna er," sagði hann og brosti, "að þegar ég kem út á morgnana og tek þau upp, þá eru þau ekki næstum eins mörg og mig minnti að ég hefði hengt upp kvöldið áður."
Ókunnur höfundur
Ekki spurning góður boðskapur.
Ætla að vera latur í dag og ekki blogga meira þennan daginn
Eigið góðan dag þið sem lesið þetta og hinir allir líka
kveðja Siggi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.12.2007 | 14:15
Fallegur dagur stór dagur fyrir mnd.
Góðan dag
Vaknaði tímanlega í morgun til að fara til Hveragerðis,á N.L.F.I. ekki til að leggjast þar inn,heldur til að vera viðstaddur opnun á Maggýjar herbergi.
Maggý sem herbergið er til minningar um var systir mín og mjög stórbrotinn manneskja sem barst lítið á,en allir sem til þektu vissu hversu sterkur og mikill persónuleiki var þar á ferð.
það var skemmtileg stund full af blönduðum tilfinningum að vera staddur þarna ásamt félögum úr mnd og fleira fólki auk fjölskyldu Maggýjar.
Athöfnin var látlaus og falleg og Guðjón Kraftaverkaengill og formaður mnd sá um að húmorinn væri á sýnum stað.
Hrafnhildur systurdóttir mín afhjúpaði skjöld við herbergið og síðan klipptu Halldór mágur og Elísabet dóttir hans á borða og öllum boðið að skoða þetta fullbúna herbergi fyrir mnd sjúklinga.
Aðstaðan var hreint út sagt frábær og er þetta mikill sigur fyrir mnd félagið
En eins og ég sagði áður í blogginu þá voru blandaðar tilfinningar, söknuður,gleði.stolt.og væntumþykja.
Langar mig fyrir mína hönd og fjölskyldu minnar að þakka fyrir að fá að vera þarna.
P.s minni á slóð
http://www.mnd.is/
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.12.2007 | 05:58
Jóla Jóla Jóla hvað ???
Góðan Dag allir sem lesa þetta.
Var að velta fyrir mér jólunum og um hvað þau snúast.
Hugsaði um jólabrjálæðið sem nú tröllríður öllu,
Á hverjum degi er Póstkassinn fullur af bæklingum um jólagjafir
(og viti menn það er hægt að fá þær á raðgreiðslum)
þvílíkur léttir maður minn.
Ef ég henti ekki þessum bæklingum strax sem heita sumir hverjir Jólagjafahandbækur þá er ég næsta viss um að þær tækju rúmlega eina hillu í góðum bókaskáp
(mundu sóma sér vel á meðal annarra ritverka)ekki eins og ég eigi mikið af þeim
En eru Jólin þá bara höfuðverkur næsta kortagreiðslu tímabils
eða næsta árið ? spyr sá sem ekki veit
Ég ætla allavega ekki að taka þátt í verslunareigendahátíðinni í ár í staðin ætla ég að halda jól!!!!!
Og upplýsist það hér með að þeir sem fá gjöf frá mér fá aðeins kerti og spil,
Nú kann einhver að hlæja og hugsa sem svo hann þarf nú að kaupa það í verslun,
en ó ekki hann ég.
Hef safnað kerta afgöngum þetta árið og bræði þá bara niður og steypi kerti í eldhúsinu hjá mér mér,
síðan klippi ég út fallegar myndir úr jólagjafahandbókunum
og lími á pappír geri þessi fínu jólakort
æææ þá má ég ekki henda þessum kílóum af bæklingum sem verða í póstkassanum mínum í dag.
Hjá mér munu jólin og aðventan snúast um að eiga notalega stund með þeim sem mér þykir vænt um.
Er samt mikið fyrir jólaskraut og jólalög
Aðrir hafa það eins og þeir vilja
Enda er þetta bara vangaveltur mínar um þessa kærleiks og friðarhátíð
Hafið góðan dag
muna að kvitta
Læt að gamni fylgja með mynd frá gamalli tíð þegar ég var ungur,Tekin á aðfangadagskvöld er ekki viss hvaða ár
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
6.12.2007 | 04:23
"Einhvern daginn" er langt í burtu . . . eða kemur kannski aldrei.
Góðan dag
Var að fara í gegnum gömul mail og fann þetta þar. Það rifjaðist upp fyrir mér hvað þessi saga hafði mikil áhrif á mig þá. En núna ári seinna var ég búinn að gleyma henni og boðskapnum.
Undarlegt því það rifjaðist upp að ég áfram sendi hann til svo margra.
Læt þetta hér á síðuna ef einhver er í sömu sporum og ég fékk þetta á mali las það og gleymdi því svo
GRÍPTU TÆKIFÆRIÐ
Vinur minn opnaði undirfataskúffu konu sinnar og tók upp gjafapakka vafinn inní silkipappír: "Þetta er enginn venjulegur pakki." Hann opnaði pakkann og starði á bæði pappírinn og undirfötin sem í honum voru. "Ég gaf henni þetta þegar við fórum til New York í fyrsta sinn fyrir 8 eða 9 árum síðan. Hún hefur aldrei farið í þetta. Var að spara það fram að sérstakri stund. Eða . . . ég held hún hafi verið að spara það." Hann færði sig nær rúminu og setti pakkanum hjá hinum fötunum sem hann ætlaði að taka með á jarðarfararstofuna, konan hans var nýlátin. Hann sneri sér að mér og sagði:
"Það á aldrei að geyma eitthvað til þess að nota það á sérstakri stund. Hver dagur er sérstök stund."
Ég held enn að þessi orð hafi breytt lífi mínu. Núna les ég meira og þríf minna.
Ég sit í garðinum án þess að hafa áhyggjur af neinu. Ég eyði meiri tíma með fjölskyldunni og minni tíma í vinnunni.
Ég skildi það þarna að lífið á að vera uppspretta reynslu sem maður á að njóta en ekki aðeins að þrauka í gegnum. Ég geymi ekki ekki neitt lengur, ég nota kristalsglös á hverjum degi.
Ég fer í nýju fötunum mínum í búðina, ef mig langar til þess. Ég geymi ekki uppáhalds ilmvatnið mitt fyrir sérstök tækifæri. Ég nota það hvenær sem mig langar til.
Orðin "einhvern tíman" og "einhvern daginn" eru að hverfa burt úr orðaforða mínum. Ef það er þess virði að sjá, hlusta eða gera, þá vil ég sjá hlusta og gera það núna.
Ég veit ekki hvað eiginkona vinar míns hefði gert ef hún hefði vitað að hún yrði ekki með okkur morguninn eftir, það getur enginn vitað. Ég held að hún hefði hóað í fjölskyldu sína og nánustu vini. Hún gæti jafnvel hafa kallað á gamla vini til að koma sátt á fornar deilur.
Ég vil líka gjarnan trúa því að hún hefði farið út að borða á kínverskan veitingastað, sem var hennar uppáhald. Það eru þessir litlu hlutir sem ég myndi sjá eftir að hafa ekki gert, ef ég vissi að minn tími væri kominn.
Ég myndi sjá eftir því að hafa ekki gert þetta vegna þess að ég mun aldrei framar sjá vini mína, og bréf . . . bréf sem ég ætlaði alltaf að skrifa. . . "einhvern tíman." Ég myndi sjá eftir því og vera sorgmædd vegna þess ég sagði hvorki systkinum mínum né börnum nógu oft hversu mjög mér þætti vænt um þau.
Núna reyni ég hvorki að fresta, tefja eða geyma nokkuð sem gæti fært gleði og hlátur inní líf okkar. Og á hverjum morgni segi ég við sjálfa mig þetta er minn sérstaki dagur.
Hver dagur, hver stund, hver mínúta er sérstök. Ef þú færð þetta bréf þá er það vegna þess að einhverjum þykir vænt um þig og vegna þess, sennilega, að þarna úti er einhver sem þér þykir líka vænt um.
Ef þú ert of upptekin til að senda þetta til annarra og segir við sjálfa þig að þú munir
"senda þetta við betra tækifæri" mundu að "Einhvern daginn" er langt í burtu . . . eða kemur kannski aldrei. . . .
Já það er skrítið hvað maður ætlar oft að gera eitthvað seinna.
Ég átti góðan vin sem leið mjög illa,ég rakst á hann á stað sem við vorum vanir að vera á 1.sinni í viku ásamt mörgu öðru góðu fólki,þennan dag var ég óvenju kátur og var að spjalla við fólk þegar hann segir villtu aðeins tala við mig,ég hló og sagði ja bara á eftir.Þetta eftir kom aldrei því hann fór fljótlega eftir þetta og ég sá hann aldrei aftur
hálfum mánuði seinna fylgdi ég þessum vini mínum til grafar
Ég er til dæmis alltaf á leiðinni vestur,bara seinna
Ég á æskuvin sem ég ég hef ekki séð eða heyrt í lengi,
hef ætlað að hringja í hann en bara seinna.
og stundum ætla ég bara að vera til seinna
en set þetta hér til að minna mig á
Kveðja Siggi
PS. Gaman væri að fólk kvittaði
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
5.12.2007 | 09:53
TRÚIÐ ÞIÐ ÞESSU Í OKKAR VELFERÐARÞJÓÐFÉLAGI!!!!!!!
Var að lesa þessa frétt á vísir.is og varð að birta hana hér.
Trúi því ekki að þetta geti verið svona,gerum kröfu um að ms sjúklingar fái allt sem hægt er til að bæta heilsu þeirra og líðan
Stöð 2, 04. des. 2007 18:59 Íslenskir MS sjúklingar fá ekki nauðsynlegt lyf Sextíu MS-sjúklingar fá ekki nýtt lyf sem kom til landsins fyrir fjórum mánuðum og getur hægt á framgangi sjúkdómsins. Lyfið hefur ekki enn verið sett í dreifingu. Um 330 MS sjúklingar eru á Íslandi og áætlað er að 60 manns bíði nú eftir lyfinu Tysabri sem kom á íslenskan markað í ágúst. Lyfið er S-merkt og einungis Landspítalinn getur komið því í dreifingu. Það er dýrt og kostar um tvær komma sjö milljónir fyrir einn einstakling á ári. Landspítalinn hefur ekki haft fjármagn til að kaupa lyfið vegna bágrar fjárhagsstöðu. Lyfið Tysabri dregur verulega úr virkni MS sjúkdómsins og hefur borið góðan árangur erlendis.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
5.12.2007 | 09:08
falleg mynd
Nú ætla ég lítið að skrifa en að gamni að setja inn fallega mynd af útsýni sem ég aldrei kunni að meta fyrr en alltof seint en ég elska þessa mynd í dag
skrifa meira síðar
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.12.2007 | 11:17
Góðan dag kafli 2 kemur seinna en nú bara þetta
Stundum er lífið svo skrítið og stundum svo stórbrotið oft svo mikið að gera og lítill tími fyrir fólk til að sinna því sem skiptir mestu máli í lífinu,þ.e.s. fjölskyldan og vinir.
Ég er svo heppin að eiga fjölskyldu sem lærði að meta það rétta það gekk ekki átakalaust fyrir sig
En í dag held ég að við öll séum viss um hvað það er sem í raun skiptir máli
ÞAÐ ER FJÖLSKYLDAN OG VINIR
Fyrir mörgum árum fékk ég þetta skrifað inn í jólakort og skildi það ekki þá en skil það í dag
>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>
Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt.
sem dropi breytir veig heillar skálar.
Þel getur snúist við atorð eitt.
Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Svo oft leyndist strengur í brjósti,sem brast við biturt andsvar,
gefið án saka.
Hve iðrar margt líf eitt augnakast,
sem aldrei verður tekið til baka
Einar Ben - Einræður Starkaðar
>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>
LíFIÐ ER DÁSAMLEGT
Eigið góðan dag
endilega að muna að kvitta
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.12.2007 | 04:01
1.kafli
Stolti maðurinn
það var þann 28 október 1993 sem ég hóf að starfa sem ráðgjafi hjá S.Á.Á.
Það var ekki neitt smá stoltur maður sem keyrði upp á vog á átti að fá tækifæri á að vinna á þessu frábæra frábæra sjúkrahúsi.
Hafði þá sjálfur verið án vímuefna í 5 ár og vá hugsið ykkur að fá að starfa með þessu frábæra fólki sem hafði hjálpað mér til að ná tökum á lífinu að nýu.
Byrjunin var 3 mánuðir til reynslu og það var spennandi og skemmtilegt ég fékk að fylgjast með fyrirlestrum fara í grúppur og taka viðtöl undir leiðsögn eldri ráðgjafa
eftir 3 mánuðina var mér tilkynnt að ég fengi áframhaldandi ráðningu sem ráðgjafi ;)og þar með hæfist 2ja ára nám sem endaði með því að ég fengi viðurkenningu á því að ég væri fulllærður ráðgjafi
Ég vann þessi 2.ár en ekki kom viðurkenningin og hún er reyndar ekki kominn enn í dag.
vinnan mín hjá S.Á.Á. stóð yfir frá 1993-áramóta 1999 árið 2000 réð ég mig svo á Teig sem þá var á flókagötu og rekið af Landspítalanum,eftir ár þar fór ég svo aftur að vinna hjá S.Á.Á og vann þar þar til ég var rekinn þar einn góðan eftirmiðdag ;) þegar ég mætti á kvöldvakt á unglingadeildina þar mætti Hjalti Björnsson Dagskrástjóri með bréf til mín sem ég hélt í sakleysi mínu að væri svar við umsókn minni um námsferð erlendis sem ég hafði þá nýlega sótt um en svo var ekki þetta var uppsagnarbréf og enginn ástæða nema hann(Hjalti)Brosti og sagði og kemur þetta á óvart og svar mitt var já það gerir það svaraði ég og vildi vita ástæðuna ég vann mína vakt til kl 23.30 þá fór ég heim og hugsaði málin mætti síðan ekki meira í vinnu hjá S.Á.Á. en leitaði réttar míns hjá s.f.r .og þeir sem þar unnu reyndu að fá ástæðu uppsagnarinnar en fengu ekki (ég vil taka fram að undir skrift uppsagnarbréfsins var ekki Hjalta )en sá sem það undirritaði sá ekki ástæðu til að ræða neitt við mig,enda viðhorfið þarna í starfsmannamálum að það er bara ein hlið til. ok aldrei fékkst ástæðan og eins og gefur að skilja var þetta erfitt og sárt fyrir mig þar sem skjólstæðingar þeir sem mér hefur verið trúað fyrir hafa alltaf skipt mig miklu máli og ég reynt að sinna þeim af fagmennsku og alúð.
jæja ekki meira um það ég var ekki lengi að fá vinnu til þess að gera. En viti menn 6 til 7 vikum eftir uppsögnina berst mér heim að dyrum ábyrðarbréf og það frá S.Á.Á. þar sem uppsögn mín er dregin til baka og mér boðið eða beðinn um að hefja störf sem fyrst já þið haldið kannski að ég hafi mætt bara eins og ekkert hafi í skorist ó nei ég bað lögfræðing og þann mann sem var með mín mál að skila því að þangað mundi ég aldrei stíga fæti mínum inn aftur hvorki sem starfsmaður né sjúklingur ef ég yrði svo óheppinn að þurfa á því að halda sem ég hef ekki þurft enn þann dag í dag.
Eins og ég sagði áðan hafði sá er undirritaði uppsagnarbréfið ekki séð ástæðu til að tala við mig og ekki veit ég hvað veldur en nokkuð oft hef ég sent honum tölvupóst og beðið hann um að senda mér staðfestingu á að ég hafi unnið þarna allan þennan tíma en hann af einhverjum ástæðum ekki séð ástæðu til að svara.(í dag er búið að lögvernda starfsheitið Áfengisráðgjafi og þess vegna mikilvægt fyrir mig að fá það staðfest af yfirlækni S.Á.Á starfstíma minn þar)
það var margt gott fólk að vinna með mér á öllum starfstöðum S.Á.Á. en þá er ég að tala um almenna starfsmenn ekki yfirmenn að undanskildum Sigurði Gunnsteinsyni sem var dagskrástjóri á Vík og fékk ég að njóta þess að vinna undir hans góðu stjórn í 1.ár sem var besti tími minn í starfinu hjá S.Á.Á.
Nú kann einhver að spyrja :EN SIGGI AF HVERJU VARSTU SVONA LENGI AÐ VINNA HJÁ ÞEIM:
Jú vinnan mín með skjólstæðingunum var skemmtileg og gefandi en tók líka oft á og ég vissi þá og veit enn að ég er góður ráðgjafi það hef ég oft fengið staðfest bæði þegar ég vann á Teigi og síðar er ég fór að vinna í Hlaðgerðarkoti.svo af brosandi andlitum fólks sem heilsar mér og segir þú varst ráðgjafinn minn.
já ég vann svona lengi því ég fann að ég gat og vildi hjálpa fólki sem var í baráttu við vímuefnin og aðstandendum þeirra.
En ekki til að tipla á tánum í kring um yfirmenn sem að virtist höfðu enga eða litla menntun í starfsmannastjórn og sumir hverjir enga hæfileika til mannlegrar samskipta við sitt starfsfólk.
Ég vil Taka það fram að mér þykir vænt um starf S.Á.Á. og ef aðstandendur mínir eða börnin mín þyrftu á að halda mundi ég beina þeim þangað. En ef þau vildu vinna þar mundi ég banna þeim það
því það er munur á framkomu við sjúklingana og starfsmenn
þar upplifði ég sjálfur og sá aðra upplifa eitt ljótasta einelti sem til er og þegar ég hugsa til baka
þá er ég þakklátur fyrir að hafa verið látinn fara því svo brotinn var ég orðin að ég hafði ekki rænu á að fara sjálfur.
FRAMHALD SÍÐAR
OG
ENDILEGA KVITTIÐ Í GESTABÓKINA
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Sigurður Hólmar Karlsson
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar