8.12.2007 | 14:15
Fallegur dagur stór dagur fyrir mnd.
Góðan dag
Vaknaði tímanlega í morgun til að fara til Hveragerðis,á N.L.F.I. ekki til að leggjast þar inn,heldur til að vera viðstaddur opnun á Maggýjar herbergi.
Maggý sem herbergið er til minningar um var systir mín og mjög stórbrotinn manneskja sem barst lítið á,en allir sem til þektu vissu hversu sterkur og mikill persónuleiki var þar á ferð.
það var skemmtileg stund full af blönduðum tilfinningum að vera staddur þarna ásamt félögum úr mnd og fleira fólki auk fjölskyldu Maggýjar.
Athöfnin var látlaus og falleg og Guðjón Kraftaverkaengill og formaður mnd sá um að húmorinn væri á sýnum stað.
Hrafnhildur systurdóttir mín afhjúpaði skjöld við herbergið og síðan klipptu Halldór mágur og Elísabet dóttir hans á borða og öllum boðið að skoða þetta fullbúna herbergi fyrir mnd sjúklinga.
Aðstaðan var hreint út sagt frábær og er þetta mikill sigur fyrir mnd félagið
En eins og ég sagði áður í blogginu þá voru blandaðar tilfinningar, söknuður,gleði.stolt.og væntumþykja.
Langar mig fyrir mína hönd og fjölskyldu minnar að þakka fyrir að fá að vera þarna.
P.s minni á slóð
http://www.mnd.is/
Um bloggið
Sigurður Hólmar Karlsson
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Til hamingju með þetta frábæra framtak og hana systur þína
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.12.2007 kl. 15:17
Kraftaverkin gerast vegna samstöðu okkar og ´kærleika manna eins og þín. Takk fyrir ykkar stuðning.
Gaui
Gaui (IP-tala skráð) 9.12.2007 kl. 22:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.