Hvað getur maður sagt

 

Þessi saga fékk mig til að stoppa við og hugsa um hvað við stórafólkið getum stundum gleymt því mikilvægast.

og svo var ég að skoða hvaða jólaskraut skiptir mig mestu máli og þá er það það sem var búið til af litlum höndum og gefið af svo góðum og fallegum huga með sannan kærleik í hjarta Smile

 

Lítil hjartnæm saga

 Þessi saga gerðist fyrir mörgum árum. Maður nokkur refsaði 3ja ára gamalli dóttur sinni fyrir það að eyða heilli rúllu af gylltum pappír.

Ekki var mikið til af peningum og reiddist hann þegar barnið reyndi að skreyta lítið box til að setja undir jólatréð.Engu að síður færði litla stúlkan föður sínum boxið á jóladagsmorgun og sagði: "þetta er handa þér pabbi".

Við þetta skammaðist faðir stúlkunnar sín fyrir viðbrögð sín daginn áður. En reiði hans gaus upp aftur þegar hann áttaði sig á því að boxið var tómt. Hann kallaði til dóttur sinnar, "veistu ekki að þegar þú gefur einhverjum gjöf, þá á eitthvað að vera í henni?"

Litla stúlkan leit upp til pabba síns með tárin í augunum og sagði: "Ó pabbi boxið er ekki tómt. Ég blés fullt af kossum í það. Bara fyrir þig pabbi."

Faðirinn varð miður sín. Hann tók utan um litlu stúlkuna sína og bað hana að fyrirgefa sér. Það er sagt að mörgum árum seinna, þegar faðir stúlkunnar lést, og hún fór í gegnum eigur hans hafi hún fundið gyllta boxið frá því á jólunum forðum við rúmstokkinn hans, þar hafði hann haft það alla tíð; þegar honum leið ekki vel gat hann tekið upp ímyndaðan koss og minnst allrar ástarinnar sem barnið hans hafði gefið honum og sett í boxið. Í vissum skilningi höfum við allar lifandi mannverur tekið á móti gylltum boxum frá börnunum okkar, fjölskyldum og vinum, fullum af skilyrðislausri ást og kossum. Það getur enginn gefið dýrmætari gjöf. Í dag skaltu gefa þér augnablik og njóta stórrar handfylli af minningum. Og mundu að þær verma hjarta þitt og bráðna þar, en ekki í höndum þínum.

 

það er jú hugurinn á bak við gjöfina sem skiptir máli ekki innihaldið

kveðja 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

fínt... þú færð þá bara nestisbox í jólagjöf! ;)

Andrea (IP-tala skráð) 12.12.2007 kl. 21:35

2 Smámynd: Sigurður Hólmar Karlsson

Allt í lagi ef það er fullt af kossum og knusi

Sigurður Hólmar Karlsson, 12.12.2007 kl. 21:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Hólmar Karlsson

Höfundur

Sigurður Hólmar Karlsson
Sigurður Hólmar Karlsson

Sigurður 47 ára  Fæddur í Reykjavík ólst upp  Miðhúsum í Ísafjarðardjúpi

netfang : siggiholmar@gmail.com

 

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • P7030089
  • P7030086
  • P7030085
  • 000_0466
  • 000_0467

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband