Færsluflokkur: Bloggar

Smá fréttir af mér

Jæja allt er nú lífið að taka á sig sýna réttu mynd

búinn að fá vinnu og byrjaður

veikindin að baki og bara bjartsýnn og hress

fer að vinna í sumar  á KAFFI FLÓRU Í GRASAGARÐINUM og líst ekkert smá vel á það

vinnuandi góður fagmennskan í fyrirrúmi mikill lærdómur fyrir mig og akkúrat það sem mig langar að gera ;) 

búinn að vinna þar smá í að undirbúa veislur og vitið hvað ég er bara rosa klár og fljótur að læra Tounge

svo um síðustu tók ég að mér að skreyta einn sal fyrir fermingarveislu og hvað haldið þið Wink þó ég segi sjálfur frá hef ég aldrei séð eins flott skreyttan sal Cool

 

en blogga meira næstu daga

Lífið er dásamlegt  


Hollvinir Hallargarðsins hittast við Fríkirkjuveginn

bilde

 

Hollvinir Hallargarðsins hittast við Fríkirkjuveginn mynd Fríkirkjuvegur 11. Á morgun sunnudaginn 20. apríl kl. 13 verða stofnuð Hollvinasamtök Hallargarðsins. Undirbúningshópurinn hafði auglýst opið hús að Fríkirkjuvegi 11 kl. 13-14 en síðdegis á föstudegi bárust boð um að búið væri að banna borgarminjaverði að sýna húsið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum. „Reynt verður að fá Ólaf F. Magnússon borgarstjóra til að breyta þessari ákvörðun. Í garðinum verður stutt dagskrá þar sem m.a. Nikulás Úlfar Másson, formaður Húsafriðunarnefndar flytur ávarp, íbúi við garðinn segir frá lífinu í Hallargarðinum og Jón H. Björnsson, sem hannaði garðinn sem almenningsgarð veitir leiðsögn um hann. Fundarstjóri verður Þorgrímur Gestsson blaðamaður og rithöfundur. Hollvinir Hallargarðsins eru hvattir til að fjölmenna kl. 13 á morgun við Fríkirkjuveg 11. Boltar og börn velkomin!"


Gott hjá Sturlu styð þá heilshugar

Styð heilshugar þessar aðgerðir

finnst alltaf svolítið skrítið þegar fólk sem talað er við segist styðja þessar aðgerðir en þær ættu samt ekki að bitna á mérWink

og svo þegar fólk er á móti aðgerðum sem þessum því þær lendi bara á saklausu fólki ekki þeim sem ráða þá dettur mér í hug á hverjum hafa verkföll kennara lent í gegn um tíðina voru það launagreiðendur ?

Nei það voru saklausir nemendur Smile

 


mbl.is „Ráðamenn vakni"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skilaboðaskjóðan

ja þarna er kannski komin vandi ríkisstjórnarinnar annar helmingurinn sendir hinum ályktun kannski ekkert talað saman Tounge 

 


mbl.is Græn skilaboð flokksstjórnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

????

Og hvaðan er fréttin kominn ?

það vantar alveg að geta þess hvernig hún varð til  Cool

Bara að velta þessu fyrir mér með þessa óprúttnu sem verið hefur rætt um Wink

annars bara kveðja héðan  

P.s. sá inn á vísir .is að lóan er komin,þá getum við öll sungið krónan er farin og lóan er komin 

 

 


mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Getur það verið ?

Getur það verið að Ríkisstjórnin viti ekki af þessu það heyrist ekkert frá neinum þar á bæ

Bara datt svona í hug að það væru flestir úr ríkisstjórninni í útlöndum

Bara hugmynd Wink


mbl.is Áframhaldandi „umferðarskærur"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pabbi minn er 90 ára í dag

Já í dag er stór dagur hann fósturfaðir minn er 90 ára í dag

Sem sagt fæddur 18 mars 1918 frostaveturinn mikla

Hvað get ég sagt annað en ELSKU PABBI TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN OG TAKK FYRIR ALLT

þegar ég var 3.ja ára fór ég í fóstur vestur í Ísafjarðardjúp til ömmusystur minnar og mansins hennar í fóstur.

 

Ekki man ég nú mikið eftir þeirri ferð nema smá af flugferðinni. 

Í Miðhúsum fékk ég gott og kærleiksríkt uppeldi og það merkilega er að mér finnst hann pabbi ekkert hafa breyst allan þennan tíma.

Rólegur hæglætismaður með fallegt bros og bara yndislegur maður.

Árin í Miðhúsum voru mér góð á allan hátt og hafa reynst mér vel sem veganesti út í lífið þó ég hafi ekki alltaf farið eftir því sem ég lærði þar,þá kom að því að ég þroskaðist nó til að kunna að meta og notfæra mér það sem mitt góða og fallega uppeldi gaf mér.

Það hefur verið mér umhugsunarefni núna þegar umræðan hefur staðið sem hæst um fóstur heimili og uppeldisstofnanir sem voru til á þessum tíma hversu einstaklega ég var heppinn að fara í Miðhús.

Þar fékk ég yndislega fósturforeldra og 5 fóstursystur ;) JÁ ÉG VAR OG ER RÍKUR MAÐUR

Þegar ég hugsa til baka finn ég kærleika og góðar tilfinningar til þessa tíma og ég er þakklátur og einstaklega heppinn maður að hafa fengið að alast upp með því fólki og í því umhverfi sem ég fékk 

 

Elsku Pabbi til hamingju með daginn og ég hugsa mikið til þin 

Kveðja Siggi 


Allur á skjön við efnahagslífið

Já ég er sko allur á skjön við efnahagslífið í landinu  LoL er allur á uppleið  Grin

Semsagt kominn heim eftir niðurskurð kominn með aukahlut í hálsliðina og nýtt og betra líf

já þetta er stórkostlegt hvað mér líður betur núna og er bara að vinna í því að jafna mig Smile

 

Takk fyrir kveðjurnar frá ykkur

Siggi 


Mannleg mistök aðgerð frestað en gleymdist að láta sjúklinginn vita

Jæja hér er ég enn. Sick

Mætti samt galvaskur á deild b6 kl 7.45 í morgun eftir andvöku nótt í kvíðakasti og Tekið var á móti mér og ég fékk spítalabúning og sótthreinsunar sturtan var búinn ég búinn að fá stofu og rúm og var að fara upp í rúmið þegar það kom í ljós að aðgerðinni hafði verið frestað og gleymdist að láta sjúklingin vitaWink það reyndar var annar nafni minn þarna mættur sem átti að fara í aðgerð LoLSem betur fer mætti hann því ég var kominn á stofuna hans og á leið í rúmið hans og hefði sennilega farið í aðgerðina hans líka ef hann hefði að einhverjum orsökum forfallast sem hefði ekki verið gott því hann var ekki að fara í eins aðgerð og ég Tounge

Mannlegum mistökum var borið við og trúi ég því alveg en það minkar ekkert svekkelsið yfir að þurfa að bíða fram á föstudag og aftur fasta og allt það.

getur verið að álagið á starfsfólki sjúkrahúsanna sé of mikið ? bara svona að velta því fyrir mér

þar sem mér finnst sjúklingur ekki aukaleikari í aðgerð þannig að það er slæmt ef hann er ekki látinn vita af breytingum á aðgerðardegi  Gasp

en ég sem sagt verð skorinn þann 29 febrúar reyndar flott dagsetning Smile

en ætla að fara að leggja mig núna

Hafið það sem best og takk fyrir góðar óskir þær fylgja mér fram á föstudag 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Sigurður Hólmar Karlsson

Höfundur

Sigurður Hólmar Karlsson
Sigurður Hólmar Karlsson

Sigurður 47 ára  Fæddur í Reykjavík ólst upp  Miðhúsum í Ísafjarðardjúpi

netfang : siggiholmar@gmail.com

 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • P7030089
  • P7030086
  • P7030085
  • 000_0466
  • 000_0467

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 1061

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband