Færsluflokkur: Bloggar
26.2.2008 | 12:24
Uppskurður ekki vegna niðurskurðar
Í fyrramálið leggst ég inn á spítala til skurðar ;)
það er ekki rétt að segja annað en kvíðinn er farinn að gera vart við sig og það HRESSILEGA
En ég veit eins og þeir sem sagt hafa það við mig að þetta verður ekkert mál
og ég verð betri en nokkur tíman fyrr það er samt svona að kvíðinn tekur ekkert mark á rökhugsun minni Það verður sett eitthvað nýtt í stað brjósksins sem verðu fjarlægt þannig að ég kem heim jafn þungur og ég fer inn
Í gær fór ég í innskrift þar sem öllu var lýst vel fyrir mér hversu stór skurðurinn yrði og hvar yrði skorið og hvernig slagæðum yrði ýtt til hliðar og þá var minn farinn að fölna all svakalega
En eins og menn geta skilið þá mun ég ekki blogga á næstunni en mun þá bara í staðinn lesa blogg annarra þeim mun betur
Vona að þið hafið það öll gott á meðan og hemjið tár ykkar vegna bloggleysis frá mér
þessi uppskurður er ekki vegna niðurskurðar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
21.2.2008 | 08:55
Hvenær verður maður eldriborgari ;)
Algjör snilld var að fá þetta á e-mali frá einni ferðaskrifstofunni hehe eldriborgari 47 ára
Kæri klúbbfélagi
Eldriborgaraferðir vorið 2008!
Okkar geysivinsælu vorferðir eru komnar í sölu.
Fimm flottir áfangastaðir í boði; Benidorm, Costa del sol, Portugal, Marmaris og Tenerife. Verð frá 61.100kr á mann miðað við 2 fullorðna í íbúð á Gemelos 22 á Benidorm, 15. apríl - 7. maí. Ekki gleyma - besta verðið bókast fyrst! Lesa meira
Eigið góðan dag
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
19.2.2008 | 16:44
Gott er að auka Hjúkrunarrými og leikskólapláss en?
Kom einhverstaðar fram hvar á að fá fólk til að vinna á leikskólum,
eða þessum auknu hjúkrunarrýmum ?
Eða er það ekki aðal vandinn ?
Þriggja ára áætlun um framkvæmdir í Reykjavík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
13.2.2008 | 20:50
Er alveg sammála þessu unga fólki
Fannst þessi umræða sem fór í gang um þetta mál lítt málefnaleg og Kastljósið fór algerlega frammúr sér
og finnst þau alveg eiga rétt á bótum.
fannst þetta allt saman ein hringa vitleysa og kannski svona eins og með Þorstein Davíðsson sem verið hefur mikið í umræðunni,Hann jú sótti bara um starf og fékk það.
Hvorki sonur Jónínu eða unnusta hans né Þorsteinn hafa neitt gert af sér
og reynum nú að vera málefnaleg og láta fjölskyldur Pólitíkusa í friði virðum fjölskyldur þeirra.
Eigið gott kvöld
Meiðyrðamál gegn Kastljósi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
13.2.2008 | 18:41
Bíddu nú við hvað eru þá heildargreiðslur FL.group til stjórnenda
ÆÆ aumingja mennirnir skildu þeir geta lifað af þessum launum og hvað þá þeir sem eru á starfslokasamningum hjá félaginu
Ég finn til með láglaunafólki
Laun forstjóra FL Group samtals 172 milljónir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.2.2008 | 15:02
Vilhjálmur: Hefði axlað ábyrgð
Mikið rosalega hefði hann Vilhjálmur Þ Vilhjálmsson unnið mitt traust ef hann hefði sagt ég axla hér með ábyrgð og hætti sem borgarfulltrúi
Í staðinn var blaðamannafundur um ekkert og mýsnar hurfu inn í holurnar eða fóru út úr holunum
Þetta sýndi okkur að það skiptir engu hvað okkur sem búum í Reykjavík finnst
Og þannig mun það vera meðan þessir starfsmenn okkar eru Í Ráðhúsinu
Þar á ég við alla flokka þar sem kosnir voru af okkur og áttu í upphafi að hugsa um hag okkar
en það reyndar gleymdist strax eftir kjördag
Vilhjálmur: Hef axlað ábyrgð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
11.2.2008 | 00:56
LA TRAVIATA --------- Ég er hugfanginn
LA TRAVIATA
JÁ ÉG ER HUGFANGINN
í gærkvöldi fékk ég að njóta afmælisgjafar sem elsta dóttir mín gaf mér,
það var að fara með sér í Íslensku Óperuna sitja í stúku og sjá LA TRAVIATA
og þvílík upplifun.
Hver söngvarinn öðrum betri en stjarna kvöldsins var SIGRÚN PÁLMADÓTTIR sem Víoletta Valéry
Stórkostlegur flutningur og er enn undir áhrifum sýningarinnar
Þessi afmælisgjöf var sú fallegasta sem ég hef fengið
Annars er það að frétta að ég var sendur í sveit og var svo heppinn að lenda á bæ þar sem ábúandinn er engill þar var dekrað við mig á allan hátt og missti ég ekki eitt gramm á þessum tíma sem sveitadvölin stóð.
TAKK FYRIR MIG
Eigið góðan dag
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.2.2008 | 10:45
þá er sexið búið
Í dag lauk sexinu hjá undirrituðum og sjö tók við svona er nú lífið
46 í gær og orðin 47 í dag
er viss um að fyrirsögnin veldur því að margir kíkja á bloggið
en þetta á nú vegna þess að ég á afmæli í dag og verð að heiman
eigið annars góðan dag
kveðja
En daginn í dag átt þú.
Gefðu honum allt sem þú megnar
Svo einhver finni í kvöld
að það er gott að þú ert til
A rosenbladt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
5.2.2008 | 19:06
Þá er Kominn ákvörðun!!!
Jæja lítið búið að blogga undanfarið enda lítið að gerast á þessum bæ
en nú er búið að ákveða að skera drengin eftir 3 vikur ca og er það vel.
þá er bara að vona að allt gangi vel enda ekki ástæða til að ætla annað
En það var líka ákveðinn léttir að vita að ég yrði skorinn því mér var farið að líða þannig að það væri líklega ekkert að mér nema móðursýki og þar sem ég hafði ekki útbrot né hita fannst mér að fólk tryði því ekki að ég væri veikur
þó svo að verkirnir væru til staðar og ég gengi eins og spýtukall þá var þetta tilfinningin
en nú er semsagt ég orðinn skurðhæfur og þar með fékk ég staðfestingu á að vera ekki móðursjúkur.
Eigið gott kveld og njótið ykkar
kveðja
Siggi
P.s.
Þegar að þér er þrengt og allt hefur snúist gegn þér,
þar til þér um síðir finnst að þú munir ekki þola við mínútu lengur...
þá máttu ekki gefast upp, því einmitt þá er komið að þeim
stað og stund þegar breyting mun verða á.
( HARRIET BEECHER STOWE )
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
31.1.2008 | 09:15
Hverrar trúar sem þú ert þá er þetta svo góð hugleiðing
Það er eitthvað við þetta bréf sem sagði mér að hægja aðeins á mér og skoða verðmætamat mitt
þess vegna set ég þetta hér inn ef einhver er í sömu stöðu og ég var þegar ég fann þetta bréf
Kæri vinur minn
Ég verð að setjast niður og skrifa til að minna þig á nokkuð sem er mjög mikilvægt fyrir mig.
Ég elska þig. Ég sá þig í gær á tali við vini þína og mig langaði til að tala við þig líka.
Ég beið allan daginn en þú hafðir aldrei samband. Ég vonaðist til að við gætum fundið tíma til að tala um kvöldið en ég veit að þú hafðir margt annað að hugsa um.
Þegar líða tók á daginn þinn sendi ég svalan andvara til að þú yrðir endurnærður eftir langan dag. Ég lét sérstakan ilm í loftið frá blómunum við heimreiðina en ég held að þú hafi ekki tekið eftir því þegar þú hraðaðir þér fram hjá. Mér þykir leitt að þú þurfir alltaf að flýta þér svona mikið.
Ég fylgdist með þér sofna í gærkvöldi og mig langaði til að snerta andlit þitt eða strjúka hárið svo ég sendi örlítið tunglsljós á andlit þitt og koddann.
Þegar þú vaknaðir í morgun vonaði ég að við gætum átt örlítinn tíma saman svo mig langaði til að flýta mér niður og tala við þig en ég hugsa að þú hafir verið of seinn í vinnuna.
Tár mín voru í regninu. Ég á svo margar gjafir handa þér,
svo mikið að segja þér, svo margt dásamlegt fyrir þig að upplifa því ég elska þig svo mikið.
Þannig er eðli mitt eins og þú veist. Gerðu það talaðu við mig, biddu mig um hjálp.
Ég þekki dýpstu þrár hjarta þíns og mig langar svo til að vera náinn þér.
Ást mín til þín er dýpri en úthöfin, stærri en þú gætir ýmindað þér.
Ég þrái að við eyðum tíma saman, aðeins við.
Það særir mig að sjá þig svo leiðan í dag.
Ég skil í raun hvernig það er þegar vinir bregðast.
Ég veit að hjarta þitt verkjar.
Ég ætla að hætta núna því ég veit að þú átt mjög annríkt og ég vil sannarlega ekki áreita þig .
Þér er frjálst að kjósa mig "á minn hátt" eða ekki ,
- það er þín ákvörðun.
Ég hef þegar valið þig.
Elsku vertu ekki of lengi að velja og mundu að Ég elska þig.
VINUR ÞINN GUÐ...
ef þetta getur fært einum einstaklingi bros þá er markmiðinu með birtingu þessa bréfs náð
eigið góðan dag
kveðja siggi
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Um bloggið
Sigurður Hólmar Karlsson
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 1252
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar