Færsluflokkur: Bloggar
21.1.2008 | 12:02
Horfin vinur
Góðan dag
Í dag ætla ég að láta hugann reika aftur í tíman
ástæða þess er að ég ætla að fylgja fyrrum samstarfsfélaga til grafar
Hann hét Halldór Sveinbjörnsson
Við unnum saman hjá Á.T.V.R. á Ísafyrði 1982 þá var ég aðeins 21 árs og hann gamall maður að mér fannst þá
Oft var gaman hjá okkur í vinnunni og mikið spjallað Dóri eins og ég kallaði hann og Jónatan sem þá var útsölustjóri þar voru góðir við strákpjakkinn og Tóku mér vel,ekki vorum við alltaf sammála en málin voru rædd og alltaf fundin flötur á þeim sem við gátum sæst á
Og held bara að þetta hafi verið eitt besta tímabil sem ég hef átt í vinnuferlinum.
Ja eins og ég segi var mikið spjallað og margt lærði ég af Halldóri sem ég hef getað nýtt mér eitt er mér mjög minnistætt það var þegar hann sagði að það borgaði sig ekki að segja"GERÐU EINS OG ÉG SEGI EN EKKI EINS OG ÉG GERI" HELDUR VÆRI BETRA AÐ SEGJA SVONA GERI ÉG ÞETTA ÞAÐ VÆRI KANNSKI GOTT HJÁ ÞÉR AÐ GERA ÞAÐ EINS ORÐ SEM ÉG HEF REYNT AÐ TILEINKA MÉR .
Já Halldór sagði mér margar sögur frá fyrri tímum og naut ég þess að hlusta á hann
og hann kenndi mér svo margt.
eftir að við báðir vorum fluttir suður rakst ég stundum á hann á Eiðistorgi og heilsaði hann mér alltaf jafn hlýlega sennilega hef ég alltaf verið strákpjakkurinn í hans huga en það var líka bara notalegt.
Nú kveð ég þennan vin og fyrrum samtarfsfélaga með virðingu og vináttu í huga
Ég votta aðstandendum hans og vinum mína dýpstu samúð
Sigurður Hólmar Karlsson
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.1.2008 | 11:21
Smá blogg
Góðan dag
Eitthvað gengur nú erfiðlega að ráða bug á bloggletinni en bæti úr því hér
það er annars allt bara í rólegheitum á þessum bæ,lítið að frétta
Er enn að bíða eftir úrskurði með brjósklosið verð ég skorinn eða ekki og er stundum orðin svolítið mikið pirraður á því að geta ekki unnið vegna þess.
en stendur allt til bóta næsta myndataka 23 jan og eftir það er tekinn ákvörðun um framhald.
Reyni að láta tíman líða með að lesa blogg, horfa á dvd og lesa bækur
það er samt erfitt að halda glaðlyndinu við þegar maður er ekki úti á meðal vinnandi fólks og er hættur að nenna að að hitta fólk því það er svo algengt að spurt sé og hvað ert þú að gera (eðlileg spurning )en leiðigjörn þegar svarið er ég er í veikindafríi vegna brjósklos í hálsi.
Jæja hættur að væla í dag
Hafið góðan dag
kv Siggi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
12.1.2008 | 13:32
átak vegna bloggleti ;)
Þetta gengur náttúrulega ekki að blogga ekkert ,eins mikilvæg persóna sem ég er
Þannig að það er best að setja hér inn eitthvað .
Vaknaði glaður og hress í morgun úthvíldur og í miklu hreinlætis stuði
settist svo við tölvuna meðan það leið hjá
Og las blogg vina og vandamanna það er alltaf gaman.
Hef nú hugsað um að blogga ekki um fréttir eða pólitík því það er eitthvað sem ég nenni ekki að ergja mig yfir
En að reyna að hafa jákvætt blogg og uppbyggjandi
Í dag.
Dagurinn í dag er dagurinn þinn.
Þú getur gert við hann hvað sem þú vilt
Gærdaginn áttir þú.
Honum getur þú ekki breytt.
Um morgundaginn veist þú ekki neitt
En daginn í dag átt þú.
Gefðu honum allt sem þú megnar
Svo einhver finni í kvöld
að það er gott að þú ert til
A rosenbladt.
kveðja
Siggir
Hafið góðan dag og gangið hægt um gleðinnar dyr
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
12.1.2008 | 01:00
Leikhús
Gerðist menningarlega sinnaður brá undir mig betrifætinum og skrapp í Borgarleikhúsið
ásamt manni mínum og systur.
sáum viltu finna miljón.
hreint út sagt frábært stykki og góðir leikarar.
hló mikið og og naut verksins og ekkert hægt út á það að setja
Takk stóra systir að drífa mig með þér.
Annars er bara allt við það sama hér og ekkert markvert til að blogga um
þó kvartað sé undan fáum færslum er heillin ekki virkur þessa dagana hehe
kveðja Siggi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
8.1.2008 | 18:37
Til Hamingju Margrét
Já þetta er ég ánægður með og vil bara óska Margréti til hamingju með starfið og veit að hún mun sinna því vel
Og þekki kannski vel til mála þar sem Frímann afabróðir minn starfaði lengi þar
En verð að segja að þarna er komin baráttukona sem er þekkt af því að láta málefni þeirra sem misstigið hafa sig eða minna mega sín til sín taka
Margrét Frímannsdóttir forstöðumaður Litla-Hrauns | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
7.1.2008 | 13:51
Jólin kvödd
Jæja þá er jólaskrautið komið ofaní kassa og jólaumstangið búið.
Bara eftir að ná af sér aukakílóunum sem verður hreint ekki auðvelt eftir allt þetta át sem á manni var.
en mikið líður mér alltaf vel eftir að jólaskrautið er farið eins og ég hlakka til að taka það upp og skreyta, þá finnst mér alltaf svo gott þegar það er búið að pakka því niður þá er allt svo fínt og hreint finnst mér en annars allt gott af þessum bæ
kveðja Siggi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.1.2008 | 17:30
Hvað er að ?????
Hvernig stendur á því að engin stoppar ?
Getur verið að fólk taki ekki eftir manninum eða erum við orðin svo sjálfmiðuð og sjálfselsk að hugsa það stoppar einhver annar?
Margir óku framhjá slösuðum manni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
5.1.2008 | 11:28
Hugsanlegar forsetakosningar kosta ríkissjóð 171,3 milljónir
Frétt af vísi.is
Komi til forsetakosninga í sumar er áætlað að þær kosti ríkissjóð 171,3 milljónir króna. Sú fjárhæð er veitt til kosninga í fjárlögum. Kostnaður ríkissjóðs vegna forsetakosninganna 2004 nam 37 milljónum króna á núvirði. Síðan þá hefur sú breyting orðið að allur kostnaður við forsetakosningar fellur á ríkissjóð en áður greiddu sveitarfélög fyrir störf kjörstjórna auk þess að leggja til húsnæði undir kjörfundi.
OK ég veit að það er lýðræði en förum af stað með undirskriftalist og biðjum Ástþór að sleppa því að bjóða sig fram og spörum almannafé eða notum það í annað og þarfara verkefni
Kveðja Siggi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
4.1.2008 | 15:02
HVAÐ ER VINÁTTA ?
Var að hugsa um þetta eftir að ég spjallaði við vinkonu mína í síma í dag,
við heyrumst ekki oft og sjáumst alltof sjaldan en erum alveg ótrúlega góðir vinir.
Fann þetta á julli.is síða sem ég skoða oft og ætla að stela þessu því þetta er svo satt
Umfram allt þá er mikilvægast að vera góður vinur, vera maður sjálfur
koma þannig fram,Þá sýnir þú að þú ert heiðarleg manneskja og
fólk kynnist þér eins og þú ert. Vertu skilningsrík / ur gefðu þér tíma til þess að skilja, skilja náungann áður en þú metur hann,
skilja vandamál hjá vinum ef þau eru til staðar og
umgangast hvern og einn eftir aðstæðum,
ef fólk þarf að vera í friði , hafa skilning á því.
Góðir vinir eru ekki á hverju strái,
þeir eru sjaldgæfir,
einbeittu þér að því að vera góður vinur.
Ég er svo heppin með vini og fjölskyldu að það fæ ég seint fullþakkað
það er jú verðmæti sem alltof oft er vanmetið
kveðja Siggi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
2.1.2008 | 22:24
Álfaprinsessur og fleira fólk
þegar þið sjáið þessar myndir frá gamlárskvöldi þá vitið þið að það eru til prinsessur
Já svona er maður ríkur maður börn tengdabörn og afabarn og karlinn minn
kveðja Siggi
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Um bloggið
Sigurður Hólmar Karlsson
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 1252
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar