Færsluflokkur: Bloggar
30.1.2008 | 08:44
Ja þannig er nú það
Góðan dag
Ekkert nýtt að frétta af aðgerðarmálum og því bara hangs og hugsanir þessa dagana
Ekki neitt svona merkilegt búið að vara að gerast undanfarið á þessum bæ.
Lífið gengur sinn vanagang og full ástæða til að passa að verða ekki NIÐURDREGINN
Eigið góðan dag og kannski kemur eitthvað vitrænt blogg svona næstu daga
TIL UMHUGSUNAR !
Ég bað um að verða sterkur og Guð gaf mér erfiðleika til að gera mig sterkan.
Ég bað um að verða vitur og Guð gaf mér verkefni til að leysa.
Ég bað um velsæld og Guð gaf mér hug og hönd til að vinna.
Ég bað um hugrekki og Guð lét mig mæta hættum til að leysa.
Ég bað um ást og Guð gaf mér fólk í erfiðleikum sem ég gat hjálpað.
Ég bað um greiða og Guð gaf mér tækifæri.
Ég fékk ekkert af því sem mig langaði í!
Ég fékk allt sem ég þurfti!
Höfundur ókunnur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
26.1.2008 | 23:54
Góður dagur á enda runnin
Jæja þetta var nú bara góður dagur dreif mig með dóttir minni (einni af mörgum) á
fund og það var skemmtileg og mjög fræðandi stund og ekki spillti fyrir að þar hitti ég 2 af bloggvinum mínum og þær eru reyndar meira en bloggvinir þær eru bara yndislegir vinir hef ekki hitt þær lengi en var bara eins og við hefðum sést síðast í gær.þannig eru bestu vinirni.
Ella Sigga og Helga Dóra þið eruð frábærar
en eftir þennan fund treysti ég mér til að mæta á hvaða saumaklúbb sem er því við vorum 2 kk og fjöldin allur af konum einhverntíman hefði nú sjarmatröllinu mér líkað það
en þrátt fyrir litla þátttöku karla var þetta góð stund.
Hafrún mín Takk fyrir að bjóða gamlamanninum með
er núna mikið að hugsa um að fara að hætta að reykja eftir að ég fann mynd sem gæti verið ég eftir nokkur ár ef ég fer ekki að hætta þessu
Hafið það svo gott og dreymi ykkur vel sem þetta lesið
kveðja Siggi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
25.1.2008 | 23:03
HVER HRINGDI Í HVERN OG SAGÐI HVAÐ OG KL HVAÐ ?
Sæl öll
ekki er nú mikið að gerast á þessum bæ.
Og varla neitt í frásögu færandi nema ef vera skildi heilsufar húsbóndans og bloggarans.
En þar er allt við það sama þrátt fyrir góð boð um aðstoð eftir síðasta blogg mitt
er nú verið að fara yfir tilboðin og þreifingar eiga sér stað við einhverja einhversstaðar
Allt vel skráð ef það þyrfti að fletta upp hver hringdi í hvern klukkan hvað og hvaðan
Svona er maður nú orðin af lestri og áhorfi á fjölmiðla undanfarið
en vonandi verður eitthvað bráðlega meiri bloggandi yfir mér og mun ég þá bregðast við því ástandi og láta af honum vita hið snarasta hér á veraldarvefnum
annars Hafið það gott og
munið að gæta að niðurföllum fyrir sunnudag spáir rigningu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
24.1.2008 | 20:49
Hnífaset í bakið en vantar í hálsinn
Ætla ekki að fjalla um pólitík núna
en af því að allir eru að stinga alla í bakið með misgóðum hnífum
þá er ég einn af þeim sem er að bíða eftir hnífasetti í hálsinn
Er semsagt ekkert að lagast af brjósklosinu og vona að það verði farið að fá hnífa til aðgerðar
En eins og allir vita hafa hnífar gengið kaupum og sölu undanfarði og skulum við nú vona að þeir verði grafnir eða fari bara á skurðstofurnar
Vona allavega að eitthvað fari að gerast í þessu veseni á mér og ég geti byrjað að vinna aftur.
Þó svo ég standi frammi fyrir erfiðri ákvörðun eða réttarasagt staðreynd sem er
GET ÉG UNNIÐ VIÐ UMMÖNNUN FATLAÐRA ÁFRAM
ein besta og skemmtilegasta vinna sem ég hef unnið
Kannski ekki sú best launaðasta í peningum en mjög gefandi á svo margan annan hátt
og samstarfsfólk mitt í Hátúni 12 eitt það skemmtilegasta sem hægt er að finna
Er þetta nokkuð dulbúin atvinnuauglýsing
Lifið góðu lífi og farið varlega í umferðinni
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
24.1.2008 | 14:56
Já Dagur sagði rétt
Stjórnmálamenn hafa sett niður í dag og taldi hann þar engan undanskilinn
Fundur hafinn á ný í Ráðhúsinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.1.2008 | 14:59
Horfi nú hver og einn í sinn eigin barm!!!!!!!!!
Helst vildi ég að hver flokkur fyrir sig færi í sjálfskoðun og það alvarlega og
fólk hugsi hversvegna það er í stjórnmálum.
Hef heyrt að sé gott að fara á kyrrðarhelgi í Skálhollt.
Það þarf mikið ef hægt er að sannfæra mig um að einhver af þeim sem eru í pólitík séu þar fyrir kjósanda, landið eða borgina eftir því sem við á
hafið annars góðan dag
Sjálfstæðismenn gagnrýndir á þingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.1.2008 | 17:18
Ef að vantar í nefnd
Ef að vantar í nefndir
Póstfangið mitt er hér í upplýsingum um höfund
Hef nægan tíma
Mikil vonbrigði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
22.1.2008 | 17:02
Eru það bara Borgarstjórar á biðlaunum
eða eru það fleiri sem njóta þess heiðurs
Hvað ætlum við að gera vera sátt bara með alla vitleysuna eða á að mótmæla þá meina ég ekki undirskriftalista á netinu sem virkar mjög lítið miðað við nöfn sem ég hef lesið þar og athugasemdir.
Margrét og Guðrún með gamla meirihlutanum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.1.2008 | 16:21
Reykvíkingar verða með þrjá borgarstjóra á launum
Það er ekki nema von að ekki sé hægt að borga fólki í ummönnunarstörfum almennileg laun
Byrjunarlaun mans sem er með 20 ára starfsreynslu í að vinna með fólk nær ekki 160 þúsundum á mánuði
En við erum með 3 á borgarstjóralaunum sem eru
eru nú ein milljón og eitthundrað og fimmtán þúsund.
Á hvern þeirra takið eftir því
Þetta er kannski einn af vandanum við að manna störf á leikskólum, hjúkrunarheimilum ,og fl.
Mér er gjörsamlega misboðið alveg sama hvaða flokkar eru þá fær enginn mitt athvæði næst en mun samt mæta til að skila auðu
Íslenskir Stjórnmálamenn skammist ykkar !!!!!!!!!!!!!!!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.1.2008 | 20:55
Boðað til kosninga strax
Hvernig er þetta allt saman að verða
Reykvíkingar eigum við ekki rétt á kosningum og það bara strax ?
Er þetta ekki allt orðið ein hringavitleysa ?
Hvað viljum við ?
Ólafur og Vilhjálmur stýra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Um bloggið
Sigurður Hólmar Karlsson
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 1252
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar