Hnífaset í bakið en vantar í hálsinn

Ætla ekki að fjalla um pólitík núna

en af því að allir eru að stinga alla í bakið með misgóðum hnífum

þá er ég einn af þeim sem er að bíða eftir hnífasetti í hálsinn Wink

Er semsagt ekkert að lagast af brjósklosinu og vona að það verði farið að fá hnífa til aðgerðar

En eins og allir vita hafa hnífar gengið kaupum og sölu undanfarði og skulum við nú vona að þeir verði grafnir eða fari bara á skurðstofurnar Cool

 

Vona allavega að eitthvað fari að gerast í þessu veseni á mér og ég geti byrjað að vinna aftur.

Þó svo ég standi frammi fyrir erfiðri ákvörðun eða réttarasagt staðreynd sem er Frown 

GET ÉG UNNIÐ VIÐ UMMÖNNUN FATLAÐRA ÁFRAM

ein besta og skemmtilegasta vinna sem ég hef unnið  

Kannski ekki sú best launaðasta í peningum en mjög gefandi á svo margan annan hátt

og samstarfsfólk mitt í Hátúni 12 eitt það skemmtilegasta sem hægt er að finna Wink

 

Er þetta nokkuð dulbúin atvinnuauglýsing Blush

Lifið góðu lífi og farið varlega í umferðinni 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég þarf að fara og kaupa mér hárbeitt hnífasett og læknabók og kassa af viský og láta svo húsbandið skera mig upp, við hljótum að geta lesið okkur áfram, ekki gerist neitt í doksa deildinni, þeir virðast ekkert geta fundið hvað er að. Ég er frekar hundpirruð orðin á þessu.

Ásdís Sigurðardóttir, 24.1.2008 kl. 22:08

2 identicon

Ég á þetta líka rosalega fína og glansandi hnífasett til  sem telur um 24 hnífa af öllum gerðum og lengdum.Ég á til wisky og sterkar verkjastillandi(nokkra pakka)góða lund,nóg pláss og laus rúm.......hvað er hægt að biðja um meira?jú og svo hefur mig alltaf langað til að spreyta mig á hjúkrun.............á ég ekki bara að opna fyrir móttöku?.....og   og  og   jú eitt enn....ég er ekki skjálfhentur

Júlíus Már Baldursson (IP-tala skráð) 25.1.2008 kl. 03:21

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ekki þýðir fyrir mig, að gefa mig fram í að gera neinar svona aðgerðir, það líður yfir mig ef ég sé mikið af blóði... Ekki hentugt sko, en ég vona að einhver og þá helst einhver sem þarf ekki að lesa sig til jafnóðum, fáist til að nota hnífasettið sitt á hálsinn á þér Annars verð ég að segja að tilboðið frá Júlíusi hljómar stórvel... með einni smá undantekningu þó...

Jónína Dúadóttir, 25.1.2008 kl. 06:43

4 Smámynd: Hafrún Kr.

Pabbi við mössum þetta bara.

Ég á hérna hnífasett sem ég fékk fyrir jól

Lætur mig bara vita ef ég á að bjarga þessu hehe. 

Hafrún Kr., 25.1.2008 kl. 16:20

5 identicon

Fallegi maður þetta er ekkert mál ég fékk sko TUPPERVER hnífa í jólagjöf frá háaldraðri dóttir minni  (ég gaf henni í afmælisgjöf á afmæli 17 des staf og göngugrind í jólagjöf ) Ég á bæði Heimilislæknirinn og lyfjabókina  (mjög nauðsynlegt á sínum tíma  ) Við reddum þessu  Hvað með mánudaginn

Erna Borgþórsóttir (IP-tala skráð) 25.1.2008 kl. 18:04

6 Smámynd: Elín Sigríður Grétarsdóttir

ég á fullt af fínum bókum, er náttúrulega næstum því orðin hjúkka (er á önn tvö af átta...) ég er laus á mánudaginn :) æi elsku siggi hvað ég vona að þetta fari að ganga í gegn hjá þér, biðjum fyrir þvi !!

Elín Sigríður Grétarsdóttir, 25.1.2008 kl. 18:43

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gangi þér vel í uppskurði Siggi minn og góðan bata.  Við skulum vona að þessi hnífasett endi á skurðdeildum landsins, gæti lækkað kostnaðinn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.1.2008 kl. 20:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Hólmar Karlsson

Höfundur

Sigurður Hólmar Karlsson
Sigurður Hólmar Karlsson

Sigurður 47 ára  Fæddur í Reykjavík ólst upp  Miðhúsum í Ísafjarðardjúpi

netfang : siggiholmar@gmail.com

 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • P7030089
  • P7030086
  • P7030085
  • 000_0466
  • 000_0467

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 1140

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband